Rúna Kristín Stefánsdóttir starfar á lokakeppni EM 2019 hjá U17 kvenna
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúna Kristín Stefánsdóttir mun starfa sem aðstoðardómari á úrslitakeppni EM 2019 hjá U17 ára landsliðum kvenna, en mótið fer fram 5.-17. maí í Búlgaríu.
Rúna Kristín er ein af átta aðstoðardómurum sem starfa á mótinu.
Á mótinu keppa, ásamt Búlgaríu, Danmörk, Spánn, Portúgal, Austurríki, Þýskaland, England og Holland.