Breiðablik spáð sigri í Pepsi Max-deild kvenna
Mynd - fotbolti.net
Kynningarfundur Pepsi Max deildar kvenna fór fram á mánudag og meðal efnis var hin árlega spá formanna, þjálfara og fyrirliða um lokastöðu liða. Samkvæmt spánni verður Breiðablik Íslandsmeistari og Valur í öðru sæti. HK/Víking og KR er spáð falli, þó stutt hafi verið á milli KR, Fylkis, Selfoss og Keflavíkur í baráttunni um 9. sætið.
Spáin
1. Breiðablik - 242 stig
2. Valur - 236 stig
3. Þór/KA - 216 stig
4. Stjarnan - 163 stig
5. ÍBV - 136 stig
6. Fylkir - 103 stig
7. Selfoss - 98 stig
8. Keflavík - 97 stig
9. KR - 92 stig
10. HK/Víkingur 47 stig