Kynningarfundur Pepsi Max deildar karla
Kynningarfundur Pepsi Max deildar karla fer fram í dag, miðvikudaginn 24. apríl, á veitingastaðnum La Primavera í Marshall-húsinu að Grandagarði 20 í Reykjavík og hefst kl. 15:30. Að venju spá þjálfarar, fyrirliðar og formenn félaganna um lokastöðu liða og verða niðurstöðurnar birtar á kynningarfundinum. Ölgerðin mun kynna markaðsstarfið fyrir sumarið, Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar og Guðni Bergsson formaður KSÍ munu flytja stutt ávörp og
Stubbur - nýtt app þar sem m.a. hægt verður að kaupa miða á leiki deildarinnar - verður kynnt til leiks. Síðast en ekki síst gefst fulltrúum fjölmiðla tækifæri á að ræða við þjálfara og fyrirliða liðanna í Pepsi Max deildinni um vonir þeirra og væntingar fyrir sumarið.