Staðfest niðurröðun leikja í 2. deild kvenna og 4. deild karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest leiki í 2. deild kvenna og 4. deild karla. Þar með hefur leikjaskrá allra móta í meistaraflokki verið staðfest.
Mikilvægt er að forráðamenn félaga sjái til þess að öll eldri drög verði tekin úr umferð til þess að forðast óþarfa misskilning. Ef breytingar verða gerðar á einstökum leikjum verður það tilkynnt sérstaklega viðkomandi félögum með tölvupósti. Á vef KSÍ eru allar breytingar, sem gerðar eru eftir að mótin eru staðfest, merktar í rauðum lit í leikjalista.