Óúttekin leikbönn í byrjun Íslandsmóts og Meistarakeppni KSÍ 2019
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur tekið saman lista til upplýsinga fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn vegna leikja fyrir keppnistímabilið 2018. Sérstök athygli er vakin á því að gefnir eru út tveir listar, annars vegar fyrir Íslandsmót og Meistarakeppni KSÍ og hins vegar fyrir bikarkeppni KSÍ. Samskonar listi, vegna bikarkeppni KSÍ, hefur þegar verið sendur í tölvupósti á félögin.
Á listunum eru leikmenn skráðir í þau félög sem þeir fengu leikbann með. Frá þeim tíma kunna þessir leikmenn að hafa skipt um félag og er því mjög mikilvægt að öll félög kynni sér listann bæði hvað varðar stöðu leikmanna frá 2018 og einnig stöðu leikmanna sem gengið hafa til liðs við félagið. Listarnir gefa ekki upplýsingar um óúttekin leikbönn í öðrum flokkum.
Listarnir eru birtir með eftirfarandi fyrirvara:
Allir úrskurðir aga- og úrskurðarnefndar 2018 um leikbönn voru tilkynntir félögunum með tölvupósti. Ef leikmaður hefur ekki tekið út leikbann sitt 2018 vegna brottvísunar flyst leikbannið í fyrsta eða fyrstu leiki í Íslandsmóts, bikarkeppni eða Meistarakeppni KSÍ í viðkomandi flokki (nema leikmaðurinn fari upp um aldursflokk og flyst þá leikbannið með honum þangað). Þessi listi er því hvorki tilkynning um leikbann né leysir hann leikmann undan leikbanni. Listarnir er aðeins til upplýsinga og áminning til félaganna um að skoða úrskurði aga- og úrskurðarnefndar frá síðasta ári sem sendir voru sendir með tölvupósti og athuga hvort leikmenn eigi eftir að taka út leikbönn.
Ef aðildarfélög finna villu í listunum eða eru í vafa um leikbönn, er þau vinsamlega beðin um að hafa samband við Þorvald Ingimundarson eða Hauk Hinriksson á skrifstofu KSÍ, í síma 510 2903/510 2912 eða í tölvupósti: thorvaldur@ksi.is eða haukur@ksi.is.