U19 kvenna - Glæsilegur 6-0 sigur gegn Búlgaríu
U19 ára landslið kvenna vann frábæran 6-0 sigur gegn Búlgaríu í öðrum leik sínum í milliriðli undankeppni EM 2019, en leikið er í Hollandi.
Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk og þær Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Helena Ósk Hálfdánardóttir, Berglind Baldursdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu eitt mark.
Ísland mætir Hollandi í síðast leik sínum í riðlinum á þriðjudaginn og hefst sá leikur kl. 17:00.
Byrjunarlið Íslands
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (M)
Barbára Sól Gísladóttir
Guðný Árnadóttir
Katla María Þórðardóttir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Eva Rut Ásþórsdóttir
Stefanía Ragnarsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir (F)
Hlín Eiríksdóttir
Bergdís Fanney Einarsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir