U19 kvenna - Ísland mætir Búlgaríu á laugardaginn
U19 ára landslið kvenna mætir Búlgaríu á laugardaginn í öðrum leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2019, en leikið er í Hollandi.
Leikurinn hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma og fer fram á Sportpark Zuid.
Ísland gerði 2-2 jafntefli í fyrsta leik sínum í riðlinum gegn Rússlandi. Á sama tíma vann Holland 6-0 sigur gegn Búlgaríu.
Aðeins eitt lið fer upp úr riðlinum. Hlín Eiríksdóttir getur tekið þátt í leiknum, en hún var í banni gegn Rússlandi.
Hægt verður að horfa á leikinn í beinni útsendingu hér að neðan: