A kvenna - Arna Sif inn fyrir Önnu Björk
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur gert breytingu á leikmannahóp sínum fyrir vináttuleikina tvo í Suður-Kóreu í byrjun apríl. Anna Björk Kristjánsdóttir verður ekki með liðinu í þessu verkefni og í hennar stað hefur Jón Þór valið Örnu Sif Ásgrímsdóttur leikmann Þór/KA. Arna Sif hefur leikið 12 leiki með A landsliði kvenna og skorað í þeim eitt mark.