U17 karla - Leikið gegn Hvíta Rússlandi í dag - Byrjunarliðið tilbúið
U17 ára landslið karla leikur í dag síðasta leik sinn í milliriðli undankeppni EM 2019 þegar liðið mætir Hvíta Rússlandi kl. 11:00 að íslenskum tíma.
Ísland trónir á toppi riðilsins og getur tryggt sér sæti í lokakeppni EM með sigri. Efsta lið hvers riðils fer áfram í lokakeppnina ásamt þeim 7 liðum af 8 sem lenda í öðru sæti.
Hægt verður að fylgjast með gangi leiksins á vef UEFA og miðlum KSÍ.
Byrjunarlið Íslands
Ólafur Kristófer Helgason (M)
Róbert Orri Þorkelsson
Oliver Stefánsson (F)
Jón Gísli Eyland Gíslason
Valgeir Valgeirsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Andri Lucas Guðjohnsen
Davíð Snær Jóhannsson
Andri Fannar Baldursson
Orri Hrafn Kjartansson
Danijel Dejan Djuric