Lengjubikar karla - Ólöglegur leikmaður
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lið KB var ólöglega skipað í leik gegn Berserkjum í Lengjubikar karla þegar liðin mættust 16. mars síðastliðinn. Arnór Ingi Guðjónsson lék með KB í leiknum, en er skráður í Leikni R.
Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:
10. SEKTIR
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.
11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.
Neðangreindur leikmaður lék ólöglegur með KB:
Nafn leikmanns: Arnór Ingi Guðjónsson
Mót: Lengjubikarinn – C-deild karla R3
Leikur: KB - Berserkir
Dagsetning: 16. mars 2019
Ástæða: Leikmaður skráður í Leikni R.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð eru úrslit leiksins skráð 3-0 Berserki og KB er sektað um kr. 60.000.-