U21 karla - Ísland mætir Katar á mánudag
U21 ára lið karla mætir Katar á mánudag, en um er að ræða vináttuleik. Leikurinn fer fram í Katar og hefst kl. 15:30 að íslenskum tíma.
Ísland mætti Tékklandi í vináttuleik á föstudaginn og endaði sá leikur með 1-1 jafntefli. Alex Þór Hauksson skoraði mark Íslands í þeim leik.
Kristófer Ingi Kristinsson ferðaðist ekki með liðinu til Katar vegna meiðsla, en annars eru allir heilir og tilbúnir í leikinn.
Þjóðirnar hafa mæst tvisvar áður í þessum aldursflokkum, en það var árið 1986 sem þau mættust í tveimur vináttuleikjum. Fyrri leikurinn endaði með 1-0 sigri Katar og sá síðari með markalausu jafntefli.