U21 karla - 1-1 jafntefli gegn Tékklandi
U21 ára lið karla gerði 1-1 jafntefli við Tékkland, en leikið var á Pinatar á Spáni. Alex Þór Hauksson skoraði mark Íslands í síðari hálfleik.
Sex mínútum eftir að Alex Þór hafði komið Íslandi yfir jöfnuðu Tékkar og þar við sat.
Strákarnir fara nú til Katar og mæta þar heimamönnum á mánudaginn. Sá leikur hefst kl. 15:30 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands
Patrik Sigurður Gunnarsson (M)
Alfons Sampsted
Torfi Tímoteus Gunnarsson
Axel Óskar Andrésson
Alex Þór Hauksson
Jón Dagur Þorsteinsson (F)
Hörður Ingi Gunnarsson
Sveinn Aron Guðjohnsen
Willum Þór Willumsson
Dagur Dan Þórhallsson
Kolbeinn Birgir Finnsson