Útgefin þátttökuleyfi á öðrum fundi leyfisráðs
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
12 þátttökuleyfi útgefin – 4 með fyrirvara
Annar fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2019 fór fram í gær miðvikudag og voru þátttökuleyfi 12 félaga samþykkt. Fjögur af leyfunum 12 voru gefin út með fyrirvara en 11 félög fengu útgefin þátttökuleyfi á fundi ráðsins fyrir viku síðan.
Þar með hafa 23 félög í efstu tveimur deildum karla fengið útgefin þátttökuleyfi, en þó 4 með fyrirvörum vegna frekari gagnaskila 31. mars nk. Ákvörðun vegna leyfisumsóknar ÍBV í Pepsi Max deild karla var frestað til föstudags.
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild karla:
FH (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
HK
KA (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
Víkingur R. (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
Samþykktar leyfisumsóknir í Inkasso-deild karla:
Afturelding
Fjölnir
Fram (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
Grótta
Haukar
Leiknir R.
Magni
Þór
*Öll þátttökuleyfi er gefin út með fyrirvara um vallarleyfi sem stjórn KSÍ gefur út sérstaklega ár hvert.