Helgi Mikael Jónasson og Jóhann Gunnar Guðmundsson dæma í milliriðli undankeppni EM 2019 hjá U17 karla
Helgi Mikael Jónasson, dómari, og Jóhann Gunnar Guðmundsson, aðstoðardómari, dæma í milliriðli undankeppni EM 2019 hjá U17 karla, en riðillinn fer fram í Skotlandi.
Ásamt Skotlandi eru í riðlinum Portúgal, Rússland og Pólland, en riðillinn fer fram dagana 20.-26. mars.
Helgi Mikael og Jóhann Gunnar hefja leik 20. mars þegar þeir dæma leik Póllands og Rússlands. Þeir dæma síðan leik Skotlands og Póllands 26. mars.
Myndir - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð