Ársþing KSÍ 2020 á Ólafsvík
Á fundi stjórnar KSÍ þann 20. febrúar síðastliðinn var ákveðið að ársþing KSÍ árið 2020 verði haldið á Ólafsvík. Jafnframt var ákveðið að halda stjórnarfund á Ísafirði sumarið 2019 og og stefnt að því að halda ársþingið 2023 á Ísafirði. Ársþing KSÍ var síðast haldið utan Reykjavíkur árin 2017 (Vestmannaeyjar) og þar á undan árið 2014 (Akureyri), og var það í fyrsta sinn í nærri áratug sem ársþingið fór ekki fram í Reykjavík.
Fundargerðir stjórnar má sjá á vef KSÍ.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.