A kvenna byrjar á tveimur heimaleikjum
Dregið var í riðla í undankeppni EM kvenna 2021 á fimmtudag og er Ísland í riðli með Svíþjóð, Ungverjalandi, Slóvakíu og Lettlandi. Leikdagar í undankeppninni liggja nú fyrir og hafa verið staðfestir af UEFA. Ísland byrjar keppnina á tveimur heimaleikjum og lýkur henni á tveimur viðureignum við Svía - fyrst á Laugardalsvelli og svo á útivelli.
Leikdagar Íslands:
Ísland - Ungverjaland 29/08/19
Ísland - Slóvakía 02/09/19
Lettland - Ísland 08/10/19
Ungverjaland - Ísland 10/04/20
Slóvakía - Ísland 14/04/20
Ísland - Lettland 04/06/20
Ísland - Svíþjóð 09/06/20
Svíþjóð - Ísland 22/09/20