Fjöldi þingfulltrúa á 73. ársþingi KSÍ
Laugardaginn 9. febrúar næstkomandi fer fram 73. ársþing KSÍ og verður það haldið á Hilton Reykjavík Nordica. Alls hafa 152 fulltrúar rétt til setu á þinginu. Nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 132 fulltrúa.
Þingið hefst kl. 10:00 og hefst afhending gagna kl. 9:30.