Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla fer fram mánudaginn 4. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla fer fram mánudaginn 4. febrúar, en þar mætast KR og Fylkir. Leikurinn hefst kl. 20:00 í Egilshöll og er sýndur beint á Sport TV.
Athygli er vakin á því að ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma í leiknum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.
Heiðursgestir á leiknum eru:
Frá KR - Sigurður Örn Jónsson, fyrrverandi leikmaður KR.
Frá Fylki - Kristján Valdimarsson, fyrrverandi leikmaður Fylkis.