Drög að niðurröðun í 4. deild karla
Drög að niðurröðun í 4. deild karla hefur verið birt á heimasíðu KSÍ, en um er að ræða fjóra riðla.
Úrslitakeppni
Eftir riðlakeppni fer fram úrslitakeppni átta liða þar sem tvö efstu lið hvers riðils komast í úrslit. Þar mætast:
8-liða úrslit
Fyrri leikir: B2-A1, C2-B1, D2-C1, A2-D1
Seinni leikir: A1-B2, B1-C2, C1-D2, D1-A2
Undanúrslit
Fyrri leikir: B2/A1-D2/C1, C2/B1-A2/D1
Seinni leikir: D2/C1-A1/B2, A2/D1-C2/B1
Úrslitaleikur og leikur um 3. sæti
Sigurvegarar í undanúrslitum leika til úrslita og tapliðin í undanúrslitum leika um 3. sætið. Leikið er til þrautar. Mótanefnd KSÍ ákveður leikstaði.
Ný félög í deildakeppninni 2019
Knattspyrnufélagið Ásvellir Hafnarfirði (KÁ)
Knattspyrnufélagið Fenrir Reykjavík
Knattspyrnufélagið Miðbær Reykjavík (KM)
Ungmennafélagið Samherjar Eyjafjarðarsveit
Félög hætt frá 2018
Stál úlfur og Geisli Aðaldal tilkynna ekki þátttöku.
Áður höfðu 3. deildar félögin Huginn og Höttur ákveðið að tefla fram sameiginlegu keppnisliði.
78 lið eru skráð til leiks í Íslandsmóti meistaraflokks karla, einu fleira en 2018.