U17 karla - Ísland mætir Tadsíkistan í leik um 5. sætið á mánudag klukkan 07:00
U17 ára lið karla mætir Tadsíkistan í leik um 5. sætið á móti í Hvíta Rússlandi, en þetta varð ljóst eftir að Ísland vann Belgíu og Tadsíkistan knúði fram sigur eftir vítaspyrnukeppni gegn Búlgaríu.
Leikurinn fer fram klukkan 07:00 að íslenskum tíma mánudaginn 28. janúar.
Þess má geta að Tadsíkistan er á leið á HM í þessum aldursflokki í október, en liðið endaði í öðru sæti Asíuriðilsins á eftir Japan.
Leikurinn verður í beinni útsending á Youtube rás knattspyrnusambands Hvíta Rússlands.
Byrjunarlið Íslands
Ólafur Kristófer Helgason (M)
Baldur Hannes Stefánsson
Elmar Þór Jónsson
Hákon Arnar Haraldsson
Róbert Orri Þorkelsson
Jón Gísli Eyland Gíslason
Davíð Snær Jóhannsson
Baldur Logi Guðlaugsson
Valgeir Valgeirsson
Andri Fannar Baldursson
Danijel Dejan Djuric