Kosningar í stjórn á 73. ársþingi KSÍ
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 26. janúar nk. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
a. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
b. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
c. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
d. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
e. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Ath! Fyrir liggur lagabreytingartillaga til samþykktar á ársþingi KSÍ 2019 um lengd kjörtímabils fulltrúa landsfjórðunga. Verði tillagan samþykkt óbreytt mun kjörtímabil fulltrúa landsfjórðunga ná til tveggja ára í stað eins árs.
Kosning formanns
Guðni Bergsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 71. ársþingi KSÍ í febrúar 2017. Tveggja ára kjörtímabili Guðna sem formanns lýkur á 73. ársþingi KSÍ árið 2019.
Guðni Bergsson gefur kost á sér til áframhaldandi formennsku.
Kosning í aðalstjórn
Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 73. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:
Guðrún Inga Sívertsen Reykjavík
Borghildur Sigurðardóttir Kópavogi
Magnús Gylfason Hafnarfirði
Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Borghildur Sigurðardóttir og Magnús Gylfason gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2020):
Gísli Gíslason Akranesi
Ingi Sigurðsson Vestmannaeyjum
Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
Valgeir Sigurðsson Garðabæ
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 73. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Bjarni Ólafur Birkisson Austurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Jakob Skúlason, Björn Friðþjófsson, Bjarni Ólafur Birkisson og Tómas Þóroddsson gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn sem aðalfulltrúar landsfjórðunga.
Kosning varamanna í aðalstjórn
Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 73. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk:
Ingvar Guðjónsson Grindavík
Jóhann Torfason Ísafirði
Kristinn Jakobsson Reykjavík
Jóhann Torfason gefur kost á sér til áframhaldandi setu sem varamaður í aðalstjórn.
Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.
Framboð skulu send með tölvupósti til framkvæmdastjóra KSÍ, klara@ksi.is.