2214. fundur stjórnar KSÍ - 8. janúar 2019
Mættir: Guðni Bergsson formaður, Guðrún Inga Sívertsen, Borghildur Sigurðardóttir, Gísli Gíslason, Ingi Sigurðsson, Magnús Gylfason, Ragnhildur Skúladóttir, Valgeir Sigurðsson og Vignir Már Þormóðsson.
Mættir varamenn: Ingvar Guðjónsson og Kristinn Jakobsson.
Þá sat Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri fundinn og ritaði fundargerð.
Fjarverandi: Jóhann Torfason varamaður í stjórn.
Þetta var gert:
- Fundargerð síðasta fundar
- Fundargerð síðasta fundar var þegar samþykkt rafrænt.
- Fundargerð síðasta fundar var þegar samþykkt rafrænt.
- Niðurstöður starfshóps um breytingar á lögum KSÍ
- Gísli Gíslason kynnti niðurstöður fundar fulltrúa ÍTF og KSÍ sem fram fór 7. janúar. Stjórn ræddi fyrirliggjandi tillögur og fól Guðna Bergssyni formanni og Gísla Gíslasyni að ganga frá þeim. Í framhaldinu verða þær senda aðildarfélögum KSÍ til kynningar. Stjórn þakkaði Gísla fyrir hans miklu vinnu í þessu máli.
- Gísli Gíslason kynnti niðurstöður fundar fulltrúa ÍTF og KSÍ sem fram fór 7. janúar. Stjórn ræddi fyrirliggjandi tillögur og fól Guðna Bergssyni formanni og Gísla Gíslasyni að ganga frá þeim. Í framhaldinu verða þær senda aðildarfélögum KSÍ til kynningar. Stjórn þakkaði Gísla fyrir hans miklu vinnu í þessu máli.
- Ársþing
- Framkvæmdastjóri kynnti umræðu á fundi fjárhagsnefndar sem fram fór fyrr í dag. Unnið er að uppgjöri árins 2018. Vinna við fjárhagsáætlun 2019 gengur ágætlega en fjárhagsnefnd vinnur nú að greiningu einstakra útgjaldaþátta. Samhliða gerð fjárhagsáætlunar 2019 er verið að vinna í yfirliti yfir tekjur og gjöld sambandsins 2019-2022 til glöggvunar á rekstrargrunni næstu ára.
- Lokafrestur til að skila framboðum til stjórnar er 26. janúar næstkomandi. Í miðjum janúar verður sent út bréf til aðildarfélaga og auglýst eftir framboðum til stjórnar.
- Lokafrestur til að skila tillögum fyrir ársþingið er 9. janúar næstkomandi.
- Rætt um málþing sem haldið verður 8. febrúar næstkomandi í tengslum við ársþingið. Enn er unnið að dagskrá málþingsins. Þegar dagskrá liggur fyrir verður hún send til aðildarfélaga ásamt kynningu á stefnumótun KSÍ.
- Vignir Már Þormóðsson formaður mótanefndar fór yfir mótamál sambandsins
- Búið að birta niðurröðun efstu deilda karla og kvenna. Í vikunni verður birt niðurröðun í 2. og 3. deild karla.
- Lokadagur til að tilkynna þátttöku í mótum sumarsins er á morgun.
- Keppni í Íslandsmótinu í Futsal er lokið. Vængir Júpiters báru sigur úr býtum í meistaraflokki karla og Selfoss í meistaraflokki kvenna.
- Landsliðsmál
- Stjórn bókaði þakkir til Eyjólfs Sverrissonar og Tómasar Inga Tómassonar og annarra starfsmanna U21 karla fyrir góð störf.
- Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn þjálfari U21 karla og Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari.
- Lúðvík Gunnarsson hefur verið ráðinn yfirmaður hæfileikamótunar KSÍ.
- Önnur mál
- Kristinn Jakobsson formaður dómaranefndar fór yfir dómaramál sambandsins.
- Tekið var fyrir bréf frá Dalvík vegna úthlutunar úr mannvirkjasjóð 2018. Stjórn samþykkti að gefa Dalvík frest til 2019 til að ljúka framkvæmdum.
- Tekið var fyrir bréf frá Stjörnunni vegna úthlutunar úr mannvirkjasjóði 2018. Málinu var vísað til formanns mannvirkjanefndar og framkvæmdastjóra til skoðunar og verður síðan tekið til afgreiðslu á næsta stjórnarfundi.
- Næsti fundur stjórnar verður 31. janúar.
Fleira var ekki á dagskrá og var fundi slitið kl. 19:40.