Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir í Evrópudeild UEFA
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Dynamo Kiev og FK Jablonec í Evrópudeild UEFA, en leikurinn fer fram í Kiev í Úkraínu 13. desember.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.
Fjórði dómari verður Birkir Sigurðarson. Ívar Orri Kristjánsson og Þóroddur Hjaltalín verða sprotadómarar.