Tillögur og málefni fyrir ársþing berist eigi síðar en 9. janúar
KSÍ minnir á að tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing, eða í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar nk.
Haukur Hinriksson lögfræðingur á skrifstofu KSÍ (haukur@ksi.is) tekur við tillögum og veitir aðstoð við uppsetningu þeirra sé þess óskað.
Ársþing KSÍ, það 73. í röðinni, fer fram laugardaginn 9. febrúar á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík.