Fundað um leyfiskerfið 10. janúar
Árlegur fundur með leyfisfulltrúum og endurskoðendum félaga í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla fer fram í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 16:30.
Um er að ræða árlegan fund þar sem farið verður yfir breytingar milli ára og hagnýt atriði. Reiknað er með að fundurinn verði ekki lengri en 60 mínútur.
Málefni á vinnufundi 2019:
Opnun og kynning á dagskrárliðum - Haukur Hinriksson, leyfisstjóri KSÍ
Breytingar á leyfisreglugerð KSÍ (útgáfa 4.1.) - Lúðvík S. Georgsson, formaður leyfisráðs KSÍ
Fjárhagsþættir - Birna María Sigurðardóttir, sérfræðingur frá Deloitte
Spurningar og umræður