Tveggja marka tap í Brussel
A landslið karla beið lægri hlut fyrir Belgíu þegar liðin mættust á þjóðarleikvangi Belga í Brussel í kvöld, fimmtudagskvöld. Lokatölur urðu 2-0 fyrir heimamenn og komu bæði mörk þeirra í seinni hálfleik. Þetta var síðasti leikur Íslands í Þjóðadeild UEFA að þessu sinni, en lokaleikur 2. riðils er úrslitaviðureign Belgíu og Sviss um efsta sæti riðilsins og þar með sæti í lokakeppni þessarar nýju keppni á vegum Knattspyrnusambands Evrópu.
Framundan er síðasti leikur íslenska liðsins á árinu, vináttuleikur gegn Katar í Eupen í Belgíu mánudaginn 19. nóvember.