Árlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga 24. nóvember
Árlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ fer fram laugardaginn 24. nóvember næstkomandi kl. 13:00-17:00 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli (3. hæð). Til fundarins eru boðaðir formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga KSÍ.
Dagskrá er í undirbúningi og verður birt á heimasíðu KSÍ þegar nær dregur.