Fundargerð Mótanefndar - 24. október 2018
Fundur Mótanefndar 24. október 2018 kl. 16:30 á skrifstofu KSÍ
Mættir: Vignir Már Þormóðsson formaður, Ingvar Guðjónsson, Sveinbjörn Másson, Björn Friðþjófsson, Þórarinn Gunnarsson og Róbert Agnarsson.
Einnig sátu fundinn Birkir Sveinsson og Guðlaugur Gunnarsson
Fundargerð ritaði: Birkir Sveinsson
Eftirfarandi var rætt:
- Mót meistaraflokka sumarið 2019
- Upphaf og endir móta sumarsins
Farið yfir fyrstu drög að leikdögum. Ákveðið að hitta fulltrúa ÍTF og fara yfir drög að leikdögum með þeim. - Hlé vegna landsleikja
Ákveðið að Pepsi-deild kvenna verði leikin á sama tíma og HM kvenna fer fram næsta sumar. Jafnframt ákveðið að gert sé hlé á keppni í Inkassodeild kvenna í landsleikjahléum, með sambærilegum hætti og Pepsi-deild kvenna. - Mögulegar úrbætur á reglugerðum
Rætt um mögulegar úrbætur á reglugerðum tengdum mótahaldi meistaraflokka. Viðeigandi starfshópar ræða málið betur.
- Upphaf og endir móta sumarsins
- Mót yngri flokka sumarið 2019
- Upphaf og endir móta sumarsins
Rætt um hvort byrja eigi mót yngri flokka fyrr og lengja hlé sem gert hefur verið eftir miðjan júlí í 4. og 5. flokki. Skoða þarf betur útfærslu og ávinning af þessu. - Mögulegar úrbætur á reglugerðum mótanna
Rætt um mögulegar úrbætur á reglugerðum tengdum mótahaldi yngri flokka. Viðeigandi starfshópar ræða málið betur. - Starfshópur um 5. flokk
Rætt um mögulegar úrbætur á reglugerðum tengdum mótahaldi yngri flokka. Viðeigandi starfshópar ræða málið betur.
- Upphaf og endir móta sumarsins
- Lengjubikarinn 2019
- Þátttaka og riðlaskipting
Farið yfir þátttöku í mótinu. Starfshópi 1 falið að afgreiða riðlaskiptingu.
- Þátttaka og riðlaskipting
- Futsal 2019
- Þátttaka, riðlaskipting og leikstaðir
Farið yfir þátttöku í mótinu og mögulega leikstaði.
20 félög skráð í mfl. karla en einungis 3 í mfl. kvenna. Riðlaskipting í mfl. karla ákveðin. Gert ráð fyrir að keppni hefjist um miðjan nóvember.
- Þátttaka, riðlaskipting og leikstaðir
Fleira ekki rætt.