• mið. 17. okt. 2018
  • Fræðsla

KSÍ II þjálfaranámskeið 26.-28. október

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnusamband Íslands heldur KSÍ II þjálfaranámskeið helgina 26.-28. október 2018. Námskeiðið er opið öllum þeim sem lokið hafa KSÍ I þjálfaranámskeiði.

Búist er við töluverðum fjölda og því gert ráð fyrir að hópnum verði skipt upp í tvennt. Dagskrá má finna neðst í fréttinni. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Námskeiðið kostar 19.000 kr. Hægt er að greiða við komuna á námskeiðið og eins er hægt að greiða í gegnum heimabanka (reikningur 0101-26-700400, kennitala 7001693679 og senda kvittun á dagur@ksi.is).

Til að ganga frá skráningu helgina 26.-28. október ferðu inn á þessa slóð: https://goo.gl/forms/kZXUjVhVu88loL9t2

Allar dagsetningar námskeiði má finna hér: https://www.ksi.is/fraedsla/thjalfaramenntun/thjalfaranamskeid/

Dagskrá - Hópur 1

Dagskrá - Hópur 2