Fundargerð Mannvirkjanefndar - 16. október 2018
Fundur Mannvirkjanefndar 16. október 2018 kl. 12:15 á skrifstofu KSÍ
Mættir: Ingi Sigurðsson, Bjarni Þór Hannesson, Jón Runólfsson, Kristján Ásgeirsson og Jóhann G. Kristinsson.
Fjarverandi: Magnús Gylfason, Margrét Leifsdóttir og Þorbergur Karlsson
Fundargerð ritaði: Jóhann G. Kristinsson
Eftirfarandi var rætt:
- Endurskoðun reglugerðar fyrir mannvirkjasjóð rædd og yfirfarin tillaga að „Skorkorti“ sem Bjarni útbjó til að auðvelda mat á þeim umsóknum sem sjóðnum berast. Fundarmenn sammála um að þetta kerfi skili meira gegnsæi og eigi eftir að auðvelda mat á innsendum umsóknum í sjóðinn. Ingi mun svo kynna stjórn KSÍ hugmyndir nefndarinnar á næsta stjórnarfundi. Ingi mun einnig senda nefndarmönnum tillögu að endurskoðun á texta reglugerðarinnar í samræmi við umræður sl. funda.
Annað var ekki rætt og fundi slitið kl. 13:30