• fös. 21. sep. 2018
  • Fræðsla

Íþróttavika Evrópu og BeActive-dagurinn

Íþróttavika Evrópu fer fram í næstu viku víðsvegar um álfuna. Íþrótta- og Ólympíusambandið mun hefja vikuna formlega með #BeActive deginum 2018 sem haldinn verður í Laugardalnum nk. sunnudag, 23. september. Það verður mikið um að vera í Laugardalnum þennan dag þar sem hægt verður að koma og prófa hinar ýmsu íþróttagreinar og hreyfingu svo sem Aqua zumba, rathlaup, frisbígolf, skylmingar, frjálsar íþróttir, skotfimi og stafgöngu svo fátt eitt sé nefnt.

Allar nánari upplýsingar má sjá á Facebook síðu viðburðarins: BeActive dagurinn 2018