A karla - Mæta Belgíu á þriðjudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
A landslið karla mætir Belgíu á þriðjudag í öðrum leik liðsins í Þjóðadeild UEFA. Um er að ræða fyrsta heimaleik liðsins í keppninni og þann fyrsta undir stjórn Erik Hamrén.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 18:45.