U21 karla - 5-2 sigur gegn Eistlandi
U21 ára lið karla vann frábæran 5-2 sigur gegn Eistlandi í undankeppni EM 2019, en leikið var á Kópavogsvelli. Óttar Magnús Karlsson, tvö, Arnór Sigurðsson, Albert Guðmundsson og Samúel Kári Friðjónsson skoruðu mörk Íslands.
Strákarnir mæta næst Slóvakíu, en sá leikur fer fram þriðjudaginn 11. september á Alvogenvellinum og hefst klukkan 15:30.