Fundargerð Rekstrarstjórnar Laugardalsvallar - 6. september 2018
Fundur Rekstrarstjórnar Laugardalsvallar 6. september 2018 kl. 11:30 á skrifstofu KSÍ
Mættir: Borghildur Sigurðardóttir (KSÍ), Ingvar Sverrisson (ÍBR), Ómar Einarsson (ÍTR) og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ sem jafnframt ritaði fundargerð.
Forföll: Guðni Bergsson formaður KSÍ
Fundargerð ritaði: Klara Bjartmarz
Eftirfarandi var rætt:
- Rætt var um dagskrá Laugardalsvallar í sumar/haust en ekki hafa bæst við neinir nýir dagskrárliðir. Rætt var um mögulega tónleika í ágúst 2019.
- Rætt var um tónleika sem fram fóru á Laugardalsvelli 24. júlí síðastliðinn en því miður hafa tónleikahaldarar ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Björgunarsveitunum sem sáu um öryggisgæslu á tónleikunum. • Drög að fjárhagslegu uppgjöri tónleikanna liggur fyrir, en þó er ennþá von á að við bætist í kostnaðarhliðina. Þá þarf að innheimta hjá tónleikahöldurum kostnað vegna viðgerða á hlaupabrautum og viðgerð á vegg umhverfis vallarsvæði. • Lagt var fram til kynningar minnisblað um framkvæmd tónleikanna (endurmat).
- Rætt var framkvæmdir á Laugardalsvelli, en ekkert hefur bæst þar við síðan á síðasta fundi.
- Rætt var um framtíð Laugardalsvallar, en vonir standa til þess Reykjavíkurborg skipi fulltrúa í undirbúningsfélag fljótlega.
- Næsti fundur er:
- 4. fundur; Febrúar 2019 (með endurskoðendum)
- 4. fundur; Febrúar 2019 (með endurskoðendum)
- Önnur mál:
- Rætt var um nýtt miðasölukerfi á Laugardalsvelli.
- Rætt var um aðsókn á leiki.
Fleira var ekki rætt
Fundi slitið kl. 12:00