U21 karla - Sigurður Arnar Magnússon inn í hópinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert eina breytingu á hóp liðsins fyrir leikina gegn Eistlandi og Slóvakíu. Sigurður Arnar Magnússon kemur inn fyrir Ásgeir Sigurgeirsson, en hann getur ekki spilað vegna meiðsla.
Fimmtudagurinn 6. september klukkan 16:45 á Kópavogsvelli
Ísland - Eistland
Þriðjudagurinn 11. september klukkan 15:30 á Alvogenvellinum
Ísland - Slóvakía