A kvenna - Ísland mætir Tékklandi á þriðjudag
A landslið kvenna mætir Tékklandi á þriðjudag, en um er að ræða síðasta leik liðsins í riðlakeppni undankeppni HM 2019. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 15:00.
Ísland á enn möguleika á að komast í umspil fyrir HM 2019 og er því um að ræða gríðarlega mikilvægan leik.
Fjölmennum á völlinn og styðjum stelpurnar til sigurs!
Áfram Ísland!