• fös. 31. ágú. 2018
  • landslið
  • parkinson

Parkinsdóttir byrjunarlið Íslands

Á laugardaginn fyrir, leik Íslands og Þýskalands, heldur vitundarvakning um Parkinsonsjúkdóminn áfram, en vakningin hófst þegar karlalið Íslands keppti við Gana fyrir HM fyrr í sumar. Fyrir leikinn við Þýskaland á laugardaginn munu ellefu konur sem greinst hafa með Parkinson, ganga inn á leikvöllinn og standa samhliða íslenska landsliðinu undir þjóðsöngnum.

“Við viljum helst vekja athygli á aukningu fólks með Parkinson hér á landi, aðallega vegna lengri lífaldurs, en flestir greinast eftir sextugt. Það vantar aðstöðu fyrir fólkið og því söfnum við fyrir Parkinsonsetri” segir Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinsonsamtakanna.

Byrjunarlið Íslands sem gengur inn á völlinn er skipað eftirtöldum leikmönnum:
 

Malín Brand 37 ára 
Greindist fyrir rúmu einu og hálfu ári. Malín vinnur sem blaðamaður, þýðandi og sjálfstætt starfandi ljósmyndari. Hún er í hlutastarfi hjá ABC barnahjálp og stundar nám í þýðingafræði við Háskóla Íslands.

Hanna Vilhjálmsdóttir 44 ára 
Greindist í ágúst 2015 þá 41 árs. Hanna er menntaður kennari, en fór í bókhaldsnám eftir greiningu og vinnur nú við bókhald.
 
Salóme Halldóra Gunnarsdóttir 49 ára 
Greindist í janúar 2017. Starfar sem hjúkrunarfræðingur í hálfu starfi á Landspítala.

Vilborg Jónsdóttir 56 ára
Greindist árið 2015. Vilborg er formaður í parkinsonsamtökunum og starfar í eigin fyrirtæki.

Anna Björg Siggeirsdóttir 57 ára
Greindist árið 2006. Anna vann við útgáfu og kynningarmál hjá VR en er núna í masternámi í ritlist í Háskóla Íslands. 

Kristín Þ. Guðmundsdóttir 58 ára 
Greindist í desember 2017. Kristín er fyrrverandi deildarstjóri á leikskóla, útivistarkona og lestrarhestur.

Ólöf Ólafsdóttir fædd 62 ára 
Greindist fyrir þremur árum. Ólöf er bóndi í hálfu starfi. Hún saumar bútasaumsteppi / velferðarteppi til að þjálfa hendurnar. Allur ágóði af sölu teppanna rennur til velferðarmála.

Guðrún  Hafdís Óðinsdóttir 63 ára  
Greindist árið 2012. Hún aðstoðaskólastjóri í 50 % starfi. Áhugamál eru fjölskyldan, hjólreiðar og gönguskíði.

Jóhanna V Magnúsdóttir 65 ára 
Greindist um mitt ár 2015. Jóhanna vann áður við skrifstofustörf en hennar helsta áhugamál er að ferðast.

Ingibjörg Hjartardóttir 67 ára 
Greindist fyrir 4 árum. Ingibjörg er rithöfundur og starfar sjálfstætt. Hún stundar nám í þýðingarfræði við Háskóla Íslands. 

Hrafnhildur Björk Sigurðardóttir 76 ára
Greindist í febrúar 2003. Starfaði áður sem útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands.

“Við erum ákaflega stolt af þessu flotta byrjunarliði okkar. Eins og sést á því þarf að leiðrétta þann misskilning að parkinson sé öldrunarsjúkdómur, en því miður er fólk að greinast með parkinson á öllum aldri og 1 af hverjum 10 er undir fimmtugu við greiningu”, segir Vilborg ennfremur.

Eins og áður kom fram þá er markmiðið verkefnisins að vekja athygli á Parkinson sjúkdómnum og safna fyrir Parkinsonsetri.  

"Í Parkinsonsetrinu er ætlunin að bjóða upp á fræðslu, þjálfun, ráðgjöf og dagvist með sérhæfðri endurhæfingu. Eins og staðan er í dag þá er þessi þjónusta ekki í boði fyrir fólk með Parkinson á Íslandi og það gengur ekki upp” bætir Vilborg við.

Hægt er að styrkja verkefnið með því að hringja í:
907-1501 fyrir 1.000 kr. 
907-1503 fyrir 3.000 kr. 
907-1505 fyrir 5.000 kr.
907-1510 fyrir 10.000 kr.

Hlekkur á frétt:  KSÍ í samstarf með Parkinsonsamtökunum á Íslandi 
Parkinsdóttir: Samstarfsverkefni KSÍ og Parkinsonssamtakanna

Nánari upplýsingar veita:
Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinsonsamtakanna sími: 690-2001
Erna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Parkinsonsamtökunum sími: 695-0108

*********************************************************************************************************

Nokkrar staðreyndir varðandi verkefnið:
Um 700 manns eru með Parkinsonsjúkdóminn hér á landi
Parkinson er næst algengasti taugahrörnunarsjúkdómur í heimi á eftir Alzheimer
Parkinson er ekki öldrunarsjúkdómur - fólk er að greinast á öllum aldri
Félagar í Parkinsonsamtökunum telja um 620, rúmlega helmingur er fólk með sjúkdóminn
Markmiðið með vitundarvakningu og fjáröflun í leiðinni, er að opna fyrsta Parkinsonsetur á Íslandi þar sem boðið verður upp á fræðslu, stuðning, þjálfun og dagvist með sérhæfðri endurhæfingu.