A kvenna - Ísland mætir Þýskalandi á laugardag
A landslið kvenna mætir Þýskalandi á laugardag í toppslag í undankeppni HM 2019. Ísland situr á toppi riðilsins, en Þýskaland er aðeins einu stigi á eftir.
Fyrri leikur liðanna endaði 3-2 fyrir Íslandi í Þýskalandi. Leikurinn hefst klukkan 14:55 og fer fram á Laugardalsvelli.
Fyrir leikinn verður boðið upp á stuðningsmannasvæði fyrir utan Laugardalsvöll með ýmsum skemmtunum. Jóhanna Guðrún mætir á svæðið um 13:30 og JóiPé og Króli klukkan 14:00. Frekari upplýsingar má finna hér: Viðburður
Mætum snemma og hvetjum stelpurnar til sigurs!
Áfram Ísland!