Bríet Bragadóttir og Eydís Ragna Einarsdóttir dæma í Liechtenstein
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bríet Bragadóttir og Eydís Ragna Einarsdóttir eru við dómarastörf í undankeppni EM 2019 hjá U19 kvenna, en leikið er í Liechtenstein. Bríet er aðaldómari og Eydís aðstoðardómari.
Í fyrstu umferð dæmdu þær leik Grikklands og Serbíu og dæma á föstudag leik Liechtenstein og Serbíu.