Fundargerð Mótanefndar - 22. ágúst 2018
Fundur Mótanefndar 22. ágúst 2018 kl. 16:30 á skrifstofu KSÍ.
Mættir: Vignir Már Þormóðsson formaður, Ingvar Guðjónsson, Sveinbjörn Másson Jóhann Steinar Ingimundarson, Þórarinn Gunnarsson og Björn Firðþjófsson (í síma).
Einnig sátu fundinn Birkir Sveinsson og Guðlaugur Gunnarsson
Fundargerð ritaði: Birkir Sveinsson
Eftirfarandi var rætt:
- Mót meistaraflokka
- Íslandsmót og Mjólkurbikarinn
Farið almennt yfir stöðu mála í mótum meistaraflokka. Framkvæmd úrslitaleiksins í Mjólkurbikar kvenna gekk vel.
Rætt um ósætti félaganna í Pepsi-deild karla þegar ekki er orðið við óskum þeirra um breytingar leikja vegna þess að viðkomandi leikur er í beinni sendingu og sjónvarpið leggst gegn breytingunni. Mótanefndin verður þá stuðpúði milli félaganna og sjónvarpsins. Þörf á skýrari reglum/verklagi um þetta.
- Breytingar leikja
Farið yfir breytingar leikja sem átt hafa sér stað í Pepsi-deild karla vegna Evrópukeppna félagsliða. Einnig farið yfir þær óskir sem þurfti að hafna.
Verulegar breytingar voru gerðar í Inkasso-deild karla í tengslum við þátttöku Víkings Ó í undanúrslitum Mjólkurbikars karla.
Mjög miklar breytingar hafa átt sér stað í Inkasso-deild kvenna vegna verkefna landsliða (Íslands og erlendra) í allt sumar. Ljóst er að til framtíðar þá þarf að vera hlé í mótinu á landsleikjadögum, líkt og í Pepsi-deild kvenna.
- Úrslitakeppni 4. deildar
Farið yfir fyrirkomulag úrslitakeppninnar. Þrjú lið flytjast upp í 3. deild karla vegna fjölgunar í 12 lið í 3. deild karla 2019.
- Íslandsmót og Mjólkurbikarinn
- Mót yngri flokka 2018
- Óleiknir leikir
Gríðarlegt magn leikja í yngri flokkum hafa ekki farið fram. Stefnir í að einstaka lið muni eiga í erfiðleikum með að klára leiki sína áður en úrslitakeppnir hefjst.
Rætt um hvað sé til ráða. Þarf að lengja mótið?, taka upp harðari viðurlög?, ofl. Þetta þarf að skoða vandlega.
- Úrslitakeppnir yngri flokka
Farið yfir fyrirkomulag á úrslitakeppnum yngri flokka. Staðsetningar á úrslitakeppnum í 5. flokki ákveðnar.
Rætt um það hvernig hægt sé að minnka vægi markatölunnar í úrslitariðlum 4. flokks A-liða.
- Staðsetning úrslitaleikja yngri flokka
Farið yfir staðsetningar úrslitaleikja undanfarinna ára. Viðeigandi starfshópar ákveða framhaldið í ár.
- Óleiknir leikir
- Futsal 2019
- Fyrirkomulag mótsins 2019
Ákveðið að sama fyrirkomulag verði á Íslandsmótinu í futsal 2019 og var 2018.
- Fyrirkomulag mótsins 2019
- Starfshópur um 5. flokk karla
- Starfshópurinn mun hefja störf um miðjan september og ljúka störfum í síðasta lagi í nóvember.
Fleira var ekki rætt.