Elías Ingi Árnason og Kristján Már Ólafs dæma á Norðurlandamóti U16 karla
Elías Ingi Árnason og Kristján Már Ólafs hafa undanfarið verið í Færeyjum og unnið við dómgæslu á Norðurlandamóti U16 karla. Hafa þeir dæmt einn leik í hverri umferð hingað til og dæma leik Færeyja og Svíþjóðar á laugardag, en leikurinn er um 5. sæti mótsins.
Elías Ingi hefur verið aðaldómari í tveimur leikjum:
Danmörk Finnland
N-Írland - Finnland.
Þá var hann fjórði dómari í leik Svíþjóðar og Finnlands.
Kristján Már hefur verið aðstoðardómari í öllum þessum þremur leikjum.