Fundargerð Rekstrarstjórnar Laugardalsvallar - 2. ágúst 2018
Fundur Rekstrarstjórnar Laugardalsvallar 2. ágúst 2018 kl. 12:00 á skrifstofu KSÍ
Mættir: Guðni Bergsson formaður KSÍ, Ingvar Sverrisson (ÍBR), Ómar Einarsson (ÍTR) og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ sem jafnframt ritaði fundargerð.
Forföll: Borghildur Sigurðardóttir (KSÍ)
Fundargerð ritaði: Klara Bjartmarz
Eftirfarandi var rætt:
- Rætt var um dagskrá Laugardalsvallar í sumar, en ekkert hefur bæst við frá síðasta fundi.
- Rætt var um tónleika sem fram fóru á Laugardalsvelli 24. júlí síðastliðinn. Framkvæmd tónleikanna gekk ágætlega en ýmislegt má bæta í undirbúningi og framkvæmd. Fjárhagslegt uppgjör verður tilbúið á næsta fundi rekstrarstjórnarinnar. Meta þarf skemmdir sem urðu á hlaupabrautum og fara í viðgerðir sem fyrst. Við fyrstu sýn eru ekki sjáanlegar skemmdir á keppnisflötinni en ekki er víst að skemmdir komi í ljós fyrr en næsta vor.
- Rætt var framkvæmdir á Laugardalsvelli, en ekkert hefur bæst þar við síðan á síðasta fundi.
- Rætt var um framtíð Laugardalsvallar, en vonir standa til þess Reykjavíkurborg skipi fulltrúa í undirbúningsfélag fljótlega.
- Næstu fundir eru:
- 3. fundur; Fimmtudagur 6. september 2018 kl. 12:00
- 4. fundur; Febrúar 2019 (með endurskoðendum)
- Ekkert var á dagskrá undir liðnum önnur mál og var fundi slitið kl. 13:00.