FH gerði jafntefli - Stjarnan og Valur töpuðu
2. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA var leikin á fimmtudag og þar voru þrjú íslensk félög í eldlínunni. Stjarnan mætti danska liðinu FC Kaupmannahöfn á Samsung-vellinum og tapaði 0-2, Valsmenn töpuði 0-1 gegn FC Santa Coloma í Andorra og FH-ingar gerðu góða ferð til Ísrael þar sem þeir gerðu 1-1 jafntefli við Hapoel Haifa. Seinni leikirnir fara allir fram fimmtudaginn 2. ágúst, og þá leika Valur og FH á sínum heimavöllum, en Stjarnan á Parken í Kaupmannahöfn.