Þorvaldur Árnason dæmir leik The New Saints og Lincoln Red Imps
Íslenskur dómarakvartett mun halda um taumana á leik The New Saints (TNS) frá Wales og Lincoln Red Imps frá Gíbraltar í Evrópudeildinni. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í 2. umferð forkeppninnar og fer leikurinn fram á heimavelli welska liðsins þann 26. júlí. Þorvaldur Árnason verður dómari leiksins, aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Guðmundsson og Birkir Sigurðarson, og varadómari verður Þóroddur Hjaltalín.