U18 karla: Tveggja marka sigur á Lettum
U18 landslið karla vann í dag góðan tveggja marka sigur á Lettum í vináttuleik sem fram fór í Lettlandi. Fyrsta mark leiksins gerði Karl Friðleifur Gunnarsson á 29. mínútu eftir góðan undirbúning frá Andra Lucasi Guðjohnsen, sem sendi hælsendingu inn fyrir vörn lettneska liðsins, þar sem Karl Friðleifur kom á góðum spretti og lagði boltann í netið framhjá markverðinum. Andri Lucas lagði einnig upp annað mark Íslands, tók varnarmann á og lagði boltann inn fyrir vörnina á Þórð Gunnar Hafþórsson, sem skoraði með þrumuskoti. Ekki voru nein mörk skoruð í seinni hálfleik og lokatölurnar því 2-0 sigur eftir flotta frammistöðu íslenska liðsins.
Liðin mætast að nýju á Laugardag og hefst sá leikur kl. 08:00 að íslenskum tíma. Liðið heldur síðan heim til Íslands þann dag.