Leikjum breytt í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild kvenna
Mótanefnd KSÍ hefur breytt leik Vals og Víkings í Pepsi-deild karla og leik Sindra og Hamranna í Inkasso-deild kvenna. Leikur Valsmanna og Víkinga færist af laugardegi yfir á sunnudag vegna þátttöku Vals í forkeppni Meistaradeildar UEFA.
Pepsi-deild karla
Valur - Víkingur
Var: Laugardaginn 21. júlí kl. 16.00 á Origo vellinum
Verður: Sunnudaginn 22. júlí kl. 16.00 á Origo vellinum
Inkasso-deild kvenna
Sindri - Hamrarnir
Var: Laugardaginn 21. júlí kl. 14.00 á Sindravelli
Verður: Laugardaginn 21. júlí kl. 16.00 á Sindravelli