Íslensku liðin í eldlínunni í Evrópumótum
Íslensku liðin sem leika í Evrópumótum félagsliða eru öll í eldlínunni í vikunni. Íslandsmeistarar Vals mæta norska liðinu Rosenborg í seinni leik sínum 1, umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA. Fyrri leiknum lauk með eins marks sigri Vals á Origo-vellinum að Hlíðarenda. FH, Stjarnan og ÍBV eru í ólíkri stöðu fyrir seinni leiki sína í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Eyjamenn töpuðu með fjórum mörkum á Hásteinsvelli gegn norska liðinu Sarpsborg, en FH og Stjarnan unnu þriggja marka sigra. Á meðan Stjarnan vann Nömme Kalju frá Eistlandi í fyrri leiknum á Samsung-vellinum í Garðabæ, unnu FH-ingar sinn sigur á útivelli og mæta FC Lahti frá Finnlandi í Kaplakrika á fimmtudag.