U16 kvenna - 1-0 sigur á Englandi og Ísland spilar um 3. sætið á Norðurlandamótinu á sunnudaginn
U16 ára lið kvenna vann 1-0 sigur gegn Englandi í síðasta leik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins. Stelpurnar mæta því Hollandi á sunnudaginn í leik um 3. sætið.
Það var Ólöf Sigríður Kristinsdóttir sem skoraði mark Íslands.
Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Andrea Marý Sigurjónsdóttir
Hrefna Steinunn Aradóttir
Arna Eiríksdóttir
Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Clara Sigurðardóttir (F)
Ída Marín Hermannsdóttir
Jana Sól Valdimarsdóttir