Fylki spáð sigri í Inkasso deild kvenna og ÍA hjá körlum
Hinn árlegi kynningarfundur Inkasso deildarinnar fór fram í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Kynntar voru spár forráðamanna félaganna og er Fylki spáð sigri kvennamegin, en ÍA karlamegin.
Hjá konunum er Fylki og Keflavík spáð upp í Pepsi deildina á meðan Hömrunum og Sindra er spáð falli. Hjá körlunum eru það ÍA og Víkingur Ó. sem fara beint upp aftur í Pepsi deildina, en Leiknir R. og Njarðvík falla í 2. deild.
Inkasso deild kvenna
1. Fylkir - 297 stig.
2. Keflavík - 257 stig.
3. ÍA - 228 stig.
4. Haukar - 215 stig.
5. Þróttur R. - 153 stig.
6. Fjölnir - 135 stig.
7. ÍR - 119 stig.
8. Afturelding/Fram - 116 stig.
9. Hamrarnir - 97 stig.
10. Sindri - 32 stig.
Inkasso deild karla
1. ÍA - 358 stig.
2. Víkingur Ó. - 318 stig.
3. Þróttur R. - 288 stig.
4. Þór - 269 stig.
5. HK - 264 stig.
6. Fram - 214 stig.
7. Selfoss - 178 stig.
8. Haukar - 134 stig.
9. ÍR - 104 stig.
10. Magni - 102 stig.
11. Leiknir R. - 78 stig.
12. Njarðvík - 36 stig.