U16 kvenna - 4-0 sigur gegn Búlgaríu í síðasta leik á UEFA Development Tournament
U16 ára liða kvenna vann 4-0 sigur gegn Búlgaríu í síðasta leik sínum á UEFA Development Tournament, en leikið er í Gargzdai í Litháen. Það voru þær Ída Marín Hermannsdóttir, Jana Sól Valdimarsdóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir sem skoruðu mörk Íslands.
Liðið vann því alla þrjá leiki sína á mótinu og endaði með markatöluna 16-0. Frábær frammistaða hjá liðinu og ljóst að framtíðin er björt.
Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Kristín Erla Ó. Johnson
Andrea Marý Sigurjónsdóttir
Arna Eiríksdóttir
Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Clara Sigurðardóttir (F)
Ída Marín Hermannsdóttir
Jana Sól Valdimarsdóttir
María Catharina Ólafsd. Gros
Hafrún Rakel Halldórsdóttir